|
Hleðsluskólinn og Íslenski bærinn www.islenskibaerinn.com munu í sumar (2011) standa fyrir fjölbreyttum námskeiðum í íslenskri hleðslutækni. Meginhluti námskeiðanna mun fara fram á torfbænum að Austur-Meðalholtum í Flóa og í nágrenni hans, en þar er jafnframt aðsetur Íslenska bæjarins, sjá kort >mýkt-hlýja-aðlögun<. Námskeiðin eru skilgreind sem áfangar í námi í íslenskri hleðslutækni. 16.-17. júlí. Almennt grunnnámskeið. Helstu aðferðir í hefðbundnum veggjarhleðslum verða skoðaðar í samhengi við sögu og samhengi torfbygginga. Lykilhugtök, verkfæri og tækniatriði verða rædd og skilgreind. Verkleg þjálfun í gerð veggja með torfi og grjóti. 6.-7. ágúst. Almennt grunnnámskeið. Helstu aðferðir í hefðbundnum veggjarhleðslum verða skoðaðar í samhengi við sögu og samhengi torfbygginga. Lykilhugtök, verkfæri og tækniatriði verða rædd og skilgreind. Verkleg þjálfun í gerð veggja með torfi og grjóti. Í sumar og haust verður einnig boðið upp á lengri eða styttri sérsniðin námskeið og/eða fyrirlestra um íslenskan torfbæjararf fyrir tiltekna hópa. Slík námskeið/fyrirlestra er æskilegt að bóka með minnst 10 daga fyrirvara. Auk Hannesar Lárussonar framkvæmdastjóra Íslenska bæjarins er umsjón námskeiða jafnan í höndum færstu manna. Námskeiðsgjald er að jafnaði 22.000 kr., miðað við tvo daga frá 9-18:00, nema um annað sé samið. Hádegismatur og kaffi innifalið í gjaldi. Nauðsynleg verkfæri eru á staðnum. Þátttakendur skulu hafa með sér hlífðarfatnað, stígvél og vinnuhanska. Á öllum námskeiðunum verður lagt jöfnum höndum upp úr handverki og notkun hefðbundinna verkfæra, hugmyndafræði torfbygginga og fagurfræðilegum sérkennum. Þeir sem áhuga hafa eða vilja frekari upplýsingar er velkomið að hafa samband við Hannes Lárusson í síma 694 8108 eða >hanlar@islenskibaerinn.com<
|